2015-12-16 10:59:31 CET

2015-12-16 10:59:31 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 og
LSS151155 þann 15. desember 2015. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 18.
desember 2015. 

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu
skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10%
af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til
kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á
samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það
magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.390.000.000 á bilinu 3,05% -
3,25%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 660.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,15%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í
LSS150434 fyrir ISK 62.000.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434
nemur því að nafnvirði ISK 722.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,15%. Útistandandi
fyrir voru ISK 19.419.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 20.141.352.565. 

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.000.000.000 á bilinu 3,02% -
3,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 425.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,10%. Að þessu sinni var orðið við beiðni aðalmiðlara um
kaup á ISK 34.000.000 til viðbótar í LSS151155. Heildarmagn seldra bréfa í
flokki LSS151155 nemur því að nafnvirði ISK 459.000.000 á ávöxtunarkröfunni
3,10%. Útistandandi fyrir voru ISK 180.000.000. Heildarstærð flokksins er nú
ISK 639.000.000.000. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is