2017-03-02 17:24:59 CET

2017-03-02 17:24:59 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðs


Landsbankinn  hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum
flokki, LBANK 170810 og nýjum flokkum, LBANK 170911 og LBANK 180312.

Heildartilboð í útboðinu voru 33 talsins og námu samtals 5.800 m. kr.

Tólf  tilboð  að  fjárhæð  1.800 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 170810 og voru
vextir  tilboða á bilinu 5,19%-5,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 920 m. kr. á
5,20% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8378.

Tólf  tilboð  að  fjárhæð  2.120 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 170911 og voru
vextir  tilboða á bilinu 5,20%-5,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.400 m. kr.
á 5,28% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,3583.

Níu tilboð að fjárhæð 1.880 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180312 og voru vextir
tilboða  á  bilinu  5,40%-5,60%. Tilboðum  var  tekið  að fjárhæð 1.740 m. kr. á
5,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 94,6907.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. mars 2017.

Nánari  upplýsingar  um  víxlana  má  finna  á  vefsvæði  fjármögnunar  bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.


[]