|
|||
![]() |
|||
2016-11-03 17:00:58 CET 2016-11-03 17:00:58 CET REGLERAD INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Niðurstaða víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170410 og nýjum flokki, LBANK 170510. Heildartilboð í útboðinu voru 32 talsins og námu samtals 4.580 m. kr. Fimmtán tilboð að fjárhæð 2.060 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170410 og voru vextir tilboða á bilinu 5,65%-5,90%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.180 m. kr. á 5,72% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,6570. Sautján tilboð að fjárhæð 2.520 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170510 og voru vextir tilboða á bilinu 5,65%-5,90%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.780 m. kr. á 5,79% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,1713. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. nóvember 2016. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|