|
|||
2017-05-03 19:11:06 CEST 2017-05-03 19:11:06 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 4.020 m. kr. og fjöldi tilboða var 25. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 16 tilboð að nafnvirði samtals 3.440 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,92% - 3,13%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 25 að fjárhæð 1.300 m.kr. á 2,96% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 4.040 m.kr. eftir útgáfuna. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 520 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,32% – 5,36%. Öllum tilboðum í ARION CB 22 var hafnað að þessu sinni. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 60 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,29% - 5,30%. Öllum tilboðum í ARION CB 19 var hafnað að þessu sinni. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 10. maí 2017 Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 7. júní næstkomandi. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 70.300 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|