2017-05-08 17:27:09 CEST

2017-05-08 17:27:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - Frétt birt 2017-05-03 19:10:05


Leiðrétting - Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir
71.260 m. kr. en ekki 70.300 eins og fram kom í fyrri tilkynningu 



Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.020 m. kr. og fjöldi tilboða var 25.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 16 tilboð að nafnvirði samtals 3.440
m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,92% - 3,13%. Samþykkt voru tilboð í ARION
CBI 25 að fjárhæð 1.300 m.kr. á 2,96% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins
verður 4.040 m.kr. eftir útgáfuna. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 520 m.
kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,32% – 5,36%.  Öllum tilboðum í ARION CB 22 var
hafnað að þessu sinni. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 60
m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,29% - 5,30%. Öllum tilboðum í ARION CB 19
var hafnað að þessu sinni. 

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem hafa verið til
viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á
Nasdaq Ísland þann 10. maí 2017 

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra
skuldabréfa fari fram þann 7. júní næstkomandi. 

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 71.260 m. kr.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.