|
|||
2017-07-24 13:44:10 CEST 2017-07-24 13:44:10 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumLandsbankinn hf. : Arinbjörn Ólafsson ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs LandsbankansArinbjörn Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Landsbankans og tekur þegar til starfa. Arinbjörn lauk M.Sc. prófi í iðnarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og Ph.D gráðu í sömu grein frá Háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum árið 2006. Hann hóf störf á verðbréfasviði Landsbankans árið 2006. Árin 2009-2015 vann hann að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og stýrði endurútreikningi gengistryggðra lána. Arinbjörn hefur starfað sem forstöðumaður upplýsingatæknideildar hjá Landsbankanum frá árinu 2015. Á upplýsingatæknisviði Landsbankans starfa um 170 manns. Undir sviðið fellur m.a. rekstur, viðhald og þróun á tölvu- og upplýsingakerfum bankans og styður sviðið við framþróun á sviði stafrænnar tækni innan bankans. [] |
|||
|