2017-04-11 19:27:16 CEST

2017-04-11 19:27:16 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust 25 tilboð upp á 4.220 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.080 milljónir kr.

Í heild bárust 8 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.200 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,10% - 5,35%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 260 milljónir á 5,17% flötum vöxtum.

Í heild bárust 11 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.420 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,10% - 5,35%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 320 milljónir á 5,19% flötum vöxtum.

Í heild bárust 6 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.600 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,34% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.500 milljónir á 5,40% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 21 apríl.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.