|
|||
2010-08-31 10:57:38 CEST 2010-08-31 10:58:40 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2010Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Á árinu 2009 voru lífeyrisskuldbindingar sambandsins og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja settar inn í ársreikninginn. Skuldbindingin nam 78,8 milljónum króna í ársbyrjun en 73,7 milljónum króna í árslok. Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok ársins 2009 námu eftirstöðvar lánsins 289,5 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2009 nam rúmum 9,4 milljónum kr. og eigið fé í lok ársins 2009 nam 40,4 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. |
|||
|