2009-01-29 16:13:15 CET

2009-01-29 16:14:15 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Fyrirtækjafréttir

- ICEQ - breytingar á reglum sjóðsins


Í ljósi breyttra aðstæðna á íslenskum hlutabréfamarkaði hefur reglum
verðbréfasjóðsins ICEQ verið breytt. 

Helsta breytingin er að fjárfestingarstefnu ICEQ hefur verið breytt úr því að
fylgja OMXI15cap vísitölunni yfir í að fylgja OMXI6cap vísitölunni. Unnið er að
því að gera samning við NASDAQ OMX þess efnis. Breyttar reglur sjóðsins eru
meðfylgjandi. 

Í ICEQ eru í dag eignir sem tilheyra OMXI6cap vísitölunni, svo og innlán. Auk
þess á sjóðurinn hluti í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf. en
Fjármálaeftirlitið ákvað að stöðva tímabundið viðskipti með ýmissa
fjármálagerninga, þ.á m. hluti þess félags, frá og með 6. október 2008. Af þeim
sökum hefur innlausn hlutdeildarskírteina í sjóðnum verið frestað frá og með 6.
október 2008. 

Opnað verður fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í ICEQ þegar heimilað
verður að eiga viðskipti með hluti í Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis hf. að
nýju. 

Engin breyting hefur verið gerð á fjölda útgefinna hlutdeildarskírteina. 

Eignasamsetning sjóðsins er birt daglega í fréttaveitu NASDAQ OMX Iceland hf.

Ef óskað er frekari upplýsinga hafið samband við:

Sigþór Jónsson, sjóðstjóri
+354 444 6954
sigthor.jonsson@rkb.is

Jóhann Möller, sjóðstjóri
+354 444 7471
Johann.moller@rkb.is

reglur iceq.pdf