2016-04-05 18:38:53 CEST

2016-04-05 18:38:53 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Landsbankinn stækkar skuldabréfaútgáfu í norskum og sænskum krónum


Skuldabréfaútgáfa Landsbankans með gjalddaga í júní 2019 hefur verið stækkuð um
sem nemur 250 milljónum norskra króna og 100 milljónum sænskra króna.
Heildarstærð flokkana verður nú 500 milljónir norskra króna og 350 milljónir
sænskra króna. 

Skuldabréfin eru gefin út undir EMTN-ramma Landsbankans og verða skráð í
kauphöllina á Írlandi. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem samsvara 2,5% álagi
ofan á millibankavexti í norskum krónum annars vegar og 2,5% álagi ofan á
millibankavexti í sænskum krónum hins vegar. Umframeftirspurn var eftir
skuldabréfunum sem seld voru til fjárfesta í Skandinavíu. 

Umsjón með útgáfunni hafði Pareto Securities AB.

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7328