|
|||
![]() |
|||
2017-07-03 17:52:50 CEST 2017-07-03 17:52:50 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 171211 og nýjum flokkum, LBANK 180110 og LBANK 180710. Heildartilboð í útboðinu voru 29 talsins og námu samtals 3.440 m. kr. Átta tilboð að fjárhæð 1.120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 171211 og voru vextir tilboða á bilinu 4,64%-4,90%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Fimmtán tilboð að fjárhæð 1.700 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180110 og voru vextir tilboða á bilinu 4,60%-4,90%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 220 m. kr. á 4,64% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,6834. Sex tilboð að fjárhæð 620 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180710 og voru vextir tilboða á bilinu 4,80%-5,05%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. júlí 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|