|
|||
![]() |
|||
2016-11-09 14:56:01 CET 2016-11-09 14:56:01 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 11. nóvemberÍslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum föstudaginn 11. nóvember 2016. Boðnir verða út óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 23 og verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 22 og ISLA CBI 26. Stefnt verður að skráningu þeirra í Kauphöll 18. nóvember. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendum verðtryggða flokksins ISLA CBI 16 gefst kostur á að selja skuldabréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki ISLA CBI 16 er fyrirfram ákveðið á pari sem jafngildir verðinu 100 og ávöxtunarkröfunni 3,50% (að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum er verðið 115,7996515). Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 440 4490 eða með tölvupósti á vbm@isb.is. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|