|
|||
2017-10-17 19:12:41 CEST 2017-10-17 19:12:41 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.740 m.kr. Heildartilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru 2.220 m.kr. á bilinu 2,73% - 2,78%. Öll tilboð voru afþökkuð að þessu sinni. Heildartilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru 1.520 m.kr. á bilinu 2,65% - 2,72%. Öll tilboð voru afþökkuð að þessu sinni. Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 37.880 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 102.580 m.kr Nánari upplýsingar veita: * Fjárstýring - Egill Skúli Þórólfsson, egill.thorolfsson@islandsbanki.is og í síma 440 2615. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|