2010-05-21 18:04:28 CEST

2010-05-21 18:05:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Yfirlýsing um viðskiptavakt á RIKH 18 1009


NBI hf. (Landsbankinn) lýsir því hér með yfir að Landsbankinn skuldbindur sig
til að setja daglega fram kauptilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX að lágmarki
100 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum RIKH 18 1009. Jafnframt
skuldbindur Landsbankinn sig til að endurnýja tekin kauptilboð innan 15
mínútna. 
Fari heildarfjárhæð viðskipta innan dags yfir 600 milljónir króna að nafnvirði,
áskilur Landsbankinn sér rétt til að hætta framsetningu tilboða til næsta dags. 
Landsbankinn áskilur sér rétt til þess að segja upp viðskiptavakt þessari með
að lágmarki eins mánaðar fyrirvara. 
Um er að ræða einhliða ákvörðun Landsbankans, sem ekki er byggð á samningi við
Lánamál Ríkisins eða nokkurn annan.