|
|||
![]() |
|||
2017-01-06 16:45:39 CET 2017-01-06 16:45:39 CET REGLERAD INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur desember 2016Í desember flutti Icelandair 220 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 19% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 24% og sætanýting var 77,2% samanborið við 79,2% í desember 2015. Farþegar Flugfélags Íslands voru tæplega 21 þúsund í desember og fjölgaði um 17% á milli ára. Á árinu 2016 hófst flug til Aberdeen, sem flogið er á Bombardier Q400 vélum Flugfélags Íslands. Til þessa hefur það flug verið meðtalið í flutningatölum Icelandair, en frá og með desember er það fært yfir til Flugfélagsins Íslands og jafnframt hafa tölur ársins í heild verið uppfærðar til samræmis. Í desember jókst framboð Flugfélags Íslands um 59% og skýrist það að langmestu leyti af Aberdeenfluginu. Seldir blokktímar í leiguflugi stóðu í stað á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 3% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 67,9% samanborið við 60,7% í desember í fyrra. Flutningatölur fyrir árið 2016 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2016. Þeir voru alls tæplega 3,7 milljónir og fjölgaði um 20% frá fyrra ári. Sætanýting nam 82,2% og lækkaði um 1 prósentustig frá árinu 2015 sem var metár. Heildarfjöldi farþega Flugfélags Íslands var 323 þúsund og jókst um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 1% og flutt frakt um 5%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2016 var 81,5% og hefur aldrei verið hærri. ICELANDAIR DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi 219.937 185.216 19% 3.674.461 3.074.175 20% farþega Sætanýting 77,2% 79,2% -2,0 %-stig 82,2% 83,2% -1,0 %-stig Framboðnir 861,2 697,0 24% 13.653,3 11.083,3 23% sætiskm. (ASK'000.000 ) FLUGFÉLAG DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%) ÍSLANDS -------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi 20.603 17.672 17% 322.740 296.176 9% farþega Sætanýting 58,8% 70,5% -11,6 %-stig 69,3% 74,4% -5,1 %-stig Framboðnir 12,4 7,8 59% 179,6 145,0 24% sætiskm. (ASK'000.000 ) LEIGUFLUG DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Flugvélanýtin 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 100,0% 100,0% 0,0 %-stig g Seldir 1.865 1.864 0% 23.523 23.263 1% blokktímar FRAKTFLUTNING DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%) AR -------------------------------------------------------------------------------- Seldir 8.387 8.637 -3% 105.379 100.497 5% tonnkm. (FTK´000) HÓTEL DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Framboðnar 27.807 24.335 14% 352.214 325.941 8% gistinætur Seldar 18.886 14.779 28% 287.160 254.842 13% gistinætur Herbergjanýti 67,9% 60,7% 7,2 %-stig 81,5% 78,2% 3,3 %-stig ng Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|