|
|||
![]() |
|||
2008-01-03 10:44:10 CET 2008-01-03 10:44:10 CET REGULATED INFORMATION Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Fyrirtækjafréttir- ICEQ - Nýr samningur við Glitni banka um viðskiptavakt á ICEQICEQ verðbréfasjóður hefur gert samning við Glitni banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutdeildarskírteinum sjóðsins fyrir eigin reikning. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóðsins í Kauphöll Íslands hf. Glitnir banki hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutdeildarskírteini ICEQ að lágmarki 35 m.kr að markaðsvirði. Glitnir banki hf. mun leitast við að hafa mun á kauptilboði og innlausnarvirði ICEQ (ENAV15 vísitalan) eins lítinn og möguleiki er, eða að hámarki 0,3%. Munur á kaup- og sölutilboðum má ekki vera meiri en 130% af vegnum meðalgengismun undirliggjandi félaga sem mynda OMXI-15CAP vísitöluna. Glitnir banki hf. skuldbindur sig einnig til þess að endurnýja tilboð sín í ICEQ innan 3ja mínútna ef úti¬standandi tilboðum er tekið. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir banki hf. er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 250.000.000. Ef óskað er frekari upplýsinga hafið samband við: Sigþór Jónsson, +354-444-6954 sigthor.jonsson@kaupthing.com Valgarð Már Valgarðsson, +354-440 2500 valgard.valgardsson@glitnir.is |
|||
|