|
|||
![]() |
|||
2016-12-01 18:13:12 CET 2016-12-01 18:13:12 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfumÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 840 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,63%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 180 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,32%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 980 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,15%. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.100 m.kr. Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. desember næstkomandi. Á árinu 2016 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 20.000 m.kr. sem er í samræmi við útgáfuáætlun ársins sem hljóðaði upp á 20.000-30.000 m.kr. heildarútgáfu. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 64.700 m.kr. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|